?
Ég er mikið búin að vera að velta því fyrir mér hvort ég eigi að halda úti svona bloggsíðu aftur, eins og ég gerði í árdaga internetsins. Það er margt sem velkist um í kollinum á mér, alls ekki allt prenthæft, en eflaust væri gott að hreinsa þar til öðru hvoru, ég veit bara ekki hvort þetta er réttur vettvangur fyrir slíka hreinsun.
Kannski væri gáfulegra að skrifa bara með penna í venjulega dagbók?! Slík bók getur nú reyndar líka lent í röngum höndum... og þar að auki finnst mér oft ágætt að fá álit vina og vandamanna á því sem ég velti fyrir mér, and then again - þá gæti ég náttúrulega mætt með skrifuðu dagbókina mína í saumaklúbb til að fá "feedback" :)
Hugrenningar mínar munu pottþétt ekki eiga erindi til stórs hluta Facebook"vina" minna, en með tilkomu Facebook virðast allir vita allt um alla á örskotsstundu.
Hmm, kannski ég láti á þetta reyna.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim